Skessuhorn 19. janúar 2010:
/>Grundfirðingar fögnuðu sigri karlaliðsins í blaki í leik sem fram fór í íþróttahúsinu í gærkvöldi. Mótherjar UMFG var b-lið Þróttar í Reykjavík. Grundfirðingar unnu allar loturnar örugglega,  25:13,  25:16 og 25:19.

Þetta var þriðji sigur UMFG í annarri deildinni í vetur, en áður höfðu unnist sigrar á liðum Aftureldingar og Hamars. Grundfirðingar eru nú í þriðja sæti riðilsins með sex stig, en þar fyrir ofan eru Fylkir í öðru sætinu og Hrunamenn á toppnum. Næsti leikur UMFG er strax annað kvöld, miðvikudagsköld, gegn Fylki á Árbænum.

Heimasíða Grundarfjarðarbæjar óskar blakliði UMFG til hamingju með sigurinn.