Hættustig vegna hættu á gróðureldum 11. maí 2021 12:00 

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vestfjörðum, Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi hefur ákveðið að lýsa yfir hættustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum. (Sjá tilkynningu vegna óvissustigs).

Svæðið sem um er að ræða nær frá Breiðafirði að Eyjafjöllum. Þessi ákvörðun er byggð á að undanfarið hefur lítið rignt á þessu svæði og veðurspá næstu daga sýnir ekki neina úrkomu að ráði.

Hættustig almannavarna er sett á ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum þó ekki svo alvarlega að um neyðarástand sé að ræða. Að lýsa yfir hættustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila og almennings.

Banna opinn eld vegna þurrkatíðar

Samhliða því að fara á hættustig þá hafa allir slökkviliðsstjórar, á því svæði sem hættustig nær yfir, tekið þá sameiginlegu ákvörðun að banna meðferð opins elds vegna þurrkatíðar sem nú geysar. Slökkviliðsstjórar hafa sammælst um að slíkt bann sé nauðsynlegt þar sem mikil eldhætta getur skapast af litlum neista.

Bann þetta er í samræmi við reglugerð nr. 325/2016 um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum.

26. gr. Afturköllun leyfis fyrir brennu.

Sýslumanni er heimilt að afturkalla leyfi sem veitt eru skv. reglugerð þessari ef skilyrðum í leyfi er ekki fylgt eða ef upp koma þær aðstæður að hætta er talin geta stafað af leyfðri brennu. 

Slökkviliðsstjóri getur stöðvað leyfða sinubrennu, eða að kveikt sé í bálkesti, og bannað meðferð opins elds sé það talið viðsjárvert vegna veðurs eða af öðrum öryggisástæðum.

Bann þetta tekur gildi frá og með deginum í dag (11.5.2021) og tekur til þess landsvæðis sem hættustigið nær yfir. Bannið gildir þar til tilkynning um afléttingu er send út. Brot varða sektum.

Almenningur og sumarhúsaeigendur á svæðinu eru hvattir til að:

  • Ekki kveikja eld innan sem utandyra (kamínur, grill, varðeldar, flugeldar og fleira)
  • Ekki nota einnota grill sem og venjuleg grill
  • Kanna flóttaleiðir við sumarhús
  • Huga að brunavörnum (slökkvitæki, reykskynjarar) og gera flóttaáætlun
  • Ekki vinna með verkfæri sem hitna mikið eða valda neista
  • Fjarlægja eldfim efni við hús (huga að staðsetningu gaskúta)
  • Að bleyta í gróðri kringum hús þar sem þurrt er   

Hægt er að kynna sér betur hættur vegna gróðurelda, hér: www.grodureldar.is https://www.almannavarnir.is/natturuva/eldhaetta/

Ef fólk verður vart við gróðurelda á strax að hringja í 112.