Mynd Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd Tómas Freyr Kristjánsson

Hafnarsjóður Grundarfjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í neðangreint verk.

Útboðið nefnist: 

Grundarfjörður - Norðurgarður, þekja, lagnir og raforkuvirki

Helstu magntölur:

Steypa upp rafbúnaðarhús, stöpla undir ljósamöstur og brunna

  • Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn
  • Leggja vatnslagnir
  • Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu þekju
  • Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 4.130 m²
  • Raforkuvirki

Fyrsta áfanga skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2020. Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 1. júní 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 11. maí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. maí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign. 

Sjá einnig:

http://www.vegagerdin.is/framkvaemdir/utbod/auglyst-utbod/grundarfjordur-nordurgardur-thekja-lagnir-og-raforkuvirki