Nú stendur yfir bæjarhátíð Grundfirðinga, Á góðri stund og mikið líf er í bænum í tengslum við hana. Það bættist heldur betur við fólksfjöldann í dag þegar tvö skemmtiferðaskip sigldu inn fjörðinn með samtals 4.300 manns.  

Farþegar skipanna tveggja, Costa Romantica og Pacific Princess, eru 2.800 talsins en áhafnir þeirra telja um 1.500 manns. Það er því vart þverfótað fyrir ferðamönnum í Grundarfirði í dag og óhætt að segja að bærinn hreinlega iði af mannlífi.