Heilsuefling 60+ er aftur farin af stað hjá okkur í Grundarfirði.

Hreyfing, fróðleikur og frábær félagsskapur. Heilsueflingin er fyrir 60 ára og eldri og þá sem búa við örorku.

Markmið okkar er að vinna að bættri líkamlegri og andlegri heilsu, og lífsgæðum eldri borgara og öryrkja.

Við munum æfa 4x í viku,  tvisvar  í Líkamsræktinni og tvisvar í íþróttahúsinu, undir umsjón Rutar Rúnarsdóttur og Ágústu Einarsdóttur.

Hingað til hafa um 30 manns verið að mæta og vonumst við til þess að sjá sem flesta aftur, og jafnvel einhver ný andlit.

 

Þeir sem hafa áhuga á að styrkja sig á sál og líkama og hitta skemmtilegt fólk, endilega látið sjá ykkur.

Bestu kveðjur

Rut og Ágústa.

 

 

 

Áhugasamir endilega kíkið á feisbúkk síðuna okkar

www.facebook.com/groups/heilsuefling60/