Heimila notkun á rafrænu meðmælendakerfi

 

Í samræmi við reglugerð um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista fyrir kosningar nr. 254/2024, hefur kjörstjórn Grundarfjarðarbæjar tekið ákvörðun um að heimila notkun rafræns meðmælendakerfis við komandi sveitarstjórnarkosningar sem verða þann 16. maí nk. Kerfið hefur þegar verið opnað á upplýsinga- og þjónustuveitunni Ísland.is. Þau sem verða í forsvari fyrir framboð sem hyggjast bjóða fram við sveitarstjórnarkosningar geta því nú þegar stofnað meðmælasöfnun á síðunni í sínu nafni með sínum rafrænu skilríkjum og mun nafn og fæðingardagur viðkomandi birtast með söfnuninni.

Kerfið verður opið fyrir skráningu til kl. 12:00 þann 10. apríl nk. en þá rennur út framboðsfrestur vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.

Samkvæmt framangreindri reglugerð skal hverjum framboðslista, sem skilað er til yfirkjörstjórnar sveitarfélags við sveitarstjórnarkosningar, fylgja yfirlýsing um stuðning við listann og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er fram boðinn, frá kjósendum í hlutaðeigandi sveitarfélagi.

Hjá Grundarfjarðarbæ skulu að lágmarki vera 20 meðmælendur og hámarksfjöldi er tvöföld sú tala eða 40 meðmælendur.

Sem fyrr er framboðum heimilt að skila meðmælalista á blaði en kjörstjórn mælist til þess að notast verði við hið rafræna meðmælendakerfi þar sem það auðveldar mjög allt utanumhald og minnkar villuhættu. Skilyrði þess að vera meðmælandi er m.a. að hafa öðlast kosningarétt á kjördegi í þeim kosningum sem meðmælin taka til. Einungis er unnt að mæla með einu framboði við sömu kosningar og frambjóðendur geta t.d. ekki verið meðmælendur eigin framboðs.

Rétt er að taka fram að meðmæli sem safnað er til stuðnings framboði má ekki nota í öðrum tilgangi. Um miðlun, varðveislu og eyðingu gagna sem safnað verður, eru skýr ákvæði í 14. og 31. gr. reglugerðar nr. 254/2024.

Kjörstjórn Grundarfjarðarbæjar mun taka við framboðslistum föstudaginn 10. apríl nk., frá kl. 11:00 til 12:00, í Ráðhúsi Grundarfjarðar, Borgarbraut 16.