Eins og margir vita líður nú senn að sýningunni „Heimurinn okkar“ í Grundarfirði. Sýningin verður vettvangur fyrir fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir á svæðinu til að kynna starfsemi sína og ágæti fyrir heimamönnum og nærsveitungum, ásamt því að gefa innsýn í menningarlífið. Sýningin verður haldinn laugardaginn 19. mars nk. í Fjölbrautaskóla Snæfellinga, frá kl. 13:00-17:00.

Undirbúningur gengur vel og hafa nú þegar fjölmargir aðilar skráð sig til leiks. Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig því skráningarfrestur rennur út mánudaginn 7. mars nk.

Það skal sérstaklega tekið fram að það kostar ekkert að vera með.

Þeir sem hafa áhuga á þátttöku í sýningunni, eða hafa hugmyndir og ábendingar um sýninguna, er bent á að hafa samband við markaðsfulltrúa Grundarfjarðarbæjar í síma 430-8500, eða á netfangið jonas@grundarfjordur.is.

 

Stjórn Félags atvinnulífsins í Grundarfirði