A lið UMFG:  Niki, Sædís, Jófríður, Helga, Hanna Sif, Sirrý og Anna María

 Þriðjudaginn 12. apríl var héraðsmót í blaki haldið í Stykkishólmi. UMFG fór með þrjú lið á mótið, eitt í A deild og tvö í B deild. A liðinu tókst að endurheimta titilinn aftur frá árinu 2003 með 2-0 sigri við Snæfell, 2-0 sigri við Víking Ólafsvík og 1-1 jafntefli við Reyni Hellissandi sem nægði til sigurs. Í B deild urðu liðin frá UMFG í 2. og 3. sæti. Mótið var vel heppnað og skemmtilegt og leikmenn ánægðir með þann góða árangur sem náðist.

Þrjú lið UMFG, alls 20 leikmenn!