Þeir sem vilja losna við jólatré geta sett þau út við lóðarmörk hjá sér ekki síðar en fyrir hádegi mánudaginn 9. janúar, en starfsmaður áhaldahúss mun hirða þau upp eftir hádegi þennan dag.

Athugið að tré verða einungis hirt þennan eina dag. Þeir sem vilja losna við trén fyrr, eða síðar, þurfa að fara með þau í gám sem er fyrir utan gámastöðina og því aðgengilegur allan sólarhringinn.