Eins og margir eflaust vita, hefur grundfirska hljómsveitin Nögl staðið í ströngu síðastliðið ár við að spila  og skapa sér nafn í tónlistarbransanum ásamt því að hljóðrita tónlist sína til útgáfu. Diskurinn, sem kom út 21. ágúst s.l. heitir I proudly present og hefur hlotið lof fyrir vandaðar tónsmíðar og góðan hljóm. Hann hefur verið til sölu á Kaffi 59 en seldist upp í síðustu viku.

Nú eru komnir fleiri diskar á Kaffið fyrir þá sem vilja ná sér í eintak.