Grundarfjarðarbær auglýsir eftir baðverði í kvennaklefa Íþróttahúss Grundarfjarðar til að sinna baðvörslu og þrifum.

Vinnutími er frá kl. 15:50 mánudaga til fimmtudaga og aðra hverja helgi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalsteinn Jósepsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 430 8564 og 861 2576 eða á netfangi steini@gfb.is

Launakjör eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsness (SDS).

Umsóknarfrestur er til 7. sept. 2015. Ráðið er í starfið frá 14. september 2015. Sótt er um starfið á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar. 

Sækja um starf í íþróttahús