Grundarfjarðarbær auglýsir eftir starfskrafti í tvö hlutastörf, annars vegar baðvörð í kvennaklefa og hins vegar baðvörð í karlaklefa Íþróttahúss Grundarfjarðar. 

Baðverðir hafa umsjón með baðvörslu í kvenna- og karlaklefum íþróttahúss ásamt þrifum.

Vinnutími er frá kl. 16:00 mánudaga til fimmtudaga, frá 2½ til 4 klst. á dag. Starfshlutfall er um 35%.

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jósepsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 430 8564 eða á netfangi steini@grundarfjordur.is

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsness (SDS).

Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2013. Ráðið er í störfin frá 2. september 2013. Umsóknareyðublöð er að finna á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar, www.grundarfjordur.is

Sækja um starf í íþróttahúsi