Hópleikurinn í getraununum byrjar núna 25. sept. Og er þetta 6. veturinn sem þessi leikur er í gangi. Leikurinn gengur út á það að tveir aðilar mynda hóp til að taka þátt í leiknum, en reglurnar eru þannig að í hóp verða að vera 2.  

Tippað er á svokallað 64 raða kerfi sem þýðir að sett eru tvö merki við 6 leiki og svo eitt við hina sjö. Þegar úrslit eru kunn er talið hvaða hópur er með flesta leikina rétta. Þegar úrslit hverrar helgar liggja fyrir þá eru þau sett í töflu sem sýnir hvaða hópur er efstur.  Þetta er mjög einfaldur leikur og auðvelt að taka þátt. Þátttökugjaldið er eins og venjulega kr. 2000 á hóp. Þeir sem hafa áhuga á að vera með geta skráð sig á póstfangið: (moli1954@hotmail.com). Eins og í fyrra þá hittumst við á Kaffi 59 á laugardagsmorgnum kl. 11:00 eða menn geta hringt inn sínar raðir (662-2430) eða sent í tölvupósti.