Nú fer í hönd árlegt hreinsunarátak í bænum. Bæjarbúar eru hvattir til þess að taka til á lóðum sínum, koma rusli fyrir í sorppokum og koma því út fyrir lóðamörk. Starfsmenn áhaldahússins verða á ferðinni mánudaginn 19.maí og hirða rusl frá húseigendum. Eigendur númerslausra bíla eru einnig hvattir til að fjarlægja þá en þess má geta að maður nokkur sem var á gangi um bæinn taldi um það bil 16 númerslausa bíla í bænum.

Tökum höndum saman og gerum bæinn okkar hreinan og snyrtilegan fyrir sumarið!!