Nú fer í hönd hátíðin ,,Á góðri stund í Grundarfirði” og eru því bæjarbúar hvattir til þess að taka til á lóðum sínum og koma rusli til gámastöðvarinnar. Helgina 19. og 20. júlí verður gámastöðin með lengri opnunartíma.

Laugardagurinn 19. júlí verður opið frá 10:00 til 17:00

Sunnudagurinn 20. júlí  verður opið frá 13:00 til 17:00

Eigendur númerslausra eða umhirðulausra bíla eru beðnir um að fjarlægja þá hið fyrsta svo ekki þurfi að koma til frekari aðgerða.

Notum þetta tækifæri til að taka til í kringum okkur!