Nú fer í hönd árlegt hreinsunarátak í bænum. Bæjarbúar eru hvattir til þess að taka til á lóðum sínum, koma rusli fyrir í sorppokum og koma því út fyrir lóðamörk. Verkstjóri áhaldahússins verða á ferðinni um bæinn og hirðir upp rusl frá húseigendum sem sett hefur verið í poka útfyrir lóðamörk dagana 28. apríl – 2. maí.

 

Ef óskað er upplýsinga um hreinsunina má hafa samband við verkstjóra í s: 691-4343

 

Að gefnu tilefni er rétt að geta þess að moldarhaugar sem búið er að setja í og við Hönnugil verða sléttaðir út í næstu viku.

 

Stöndum saman og gerum bæinn okkar snyrtilegan fyrir sumarið!