HSH var valið fyrirmyndarfélagið á Unglingalandsmótinu sem fram fór í Þorlákshöfn. Það var Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sem tilkynnti þetta á lokathöfn mótsins í gærkvöldi.

HSH var þessa heiðurs aðnjótandi þriðja árið en á unglingalandsmótinu á Hornarfirði og á Laugum var félagið einnig fyrir valinu. Innganga HSH við setningu mótsins vakti mikla athygli og var mikill metnaður lagður í hana af hálfu héraðssambandsins. Umgjörð liðsins var sömuleiðis öll til fyrirmyndar á mótinu. 

Frétt af vef UMFÍ.