UPPFÆRT! Vegna slæmrar veðurspár þriðjudaginn 7. febrúar mun hundahreinsun frestast fram á fimmtudaginn 9. febrúar, milli klukkan 12:30-16:30 

 

Hunda- og kattahreinsun

Hunda- og kattahreinsun verður í Áhaldahúsi Grundarfjarðar (Nesvegi 19) fimmtudaginn 9. febrúar, milli klukkan 12.30 - 16.30.

Öllum hundaeigendum er skylt að mæta með sína hunda.

 

 

Sækja þarf um leyfi til að halda hunda og ketti

Kattahald er bannað í þéttbýli Grundarfjarðar. Bæjarstjórn er þó heimilt að veita undanþágu og leyfi til kattahalds. Leyfið er bundið við einstaklinga og einnig bundið við þann kött sem sótt er um heimild fyrir hverju sinni. Kattahald í dreifbýli sætir alla jafna ekki takmörkunum. 

Samþykkt um kattahald í Grundarfjarðarbæ má lesa hér.

Hér er hægt að skrá ketti

Samþykkt um hundahald í Grundarfirði, staðfest af umhverfisráðuneytinu þann 7. maí 2002, segir að leyfi þurfi til að fá að halda hund í þéttbýli Grundarfjarðar. Leyfið skal vera skráð á lögráða einstakling og er óheimilt að framselja það.
Hundaeiganda er þannig skylt að skrá hund strax við fæðingu eða þegar hundur er tekinn til dvalar í lengri eða skemmri tíma.

Samþykkt um hundahald í Grundarfjarðarbæ má lesa hér.

Hér er hægt að skrá hunda.

Lausaganga hunda

Þó hundar geti verið hvers manns hugljúfi og séu oft kallaðir besti vinur mannsins þá er ekki hægt að ganga út frá því að allir kunni að umgangast hunda eða líki vel við þá. Þegar hundar eru glaðir sýna þeir tennurnar og hlaupa í áttina að okkur, jafnvel geltandi og getur það leitt til þess að þeir sem eru ekki vanir hundum hræðist það, eins og t.d. börn.

Hundar eiga alltaf að vera í taumi utan húss og í umsjón eða fylgd ábyrgs aðila. Sleppi hundur frá eiganda eða umráðamanni, skal viðkomandi tafarlaust gera ráðstafanir til að handsama hann.

Eigendur eru minntir á að lausaganga hunda er með öllu óheimil innanbæjar og hundar í dreifbýli mega eingöngu vera lausir innan landareignar eigendanna.

Hunda- og kattasaur

Hundaeigendum er skylt að taka upp eftir hundinn sinn sbr. 14. gr. í samþykkt um hundahald í Grundarfjarðarbæ, hvort sem um þeirra eigin lóð er að ræða eða önnur svæði. 

Eigendum katta er sömuleiðis skylt að gæta þess að kettir þeirra valdi ekki tjóni, hættu, óþægindum, óþrifnaði eða raski ró manna.

Virðum reglurnar!

Eigendur eru vinsamlegast beðnir um að virða ákvæði samþykkta um hunda- og kattahald, enda er það skilyrði leyfis til að mega halda hund eða kött.

Bæjarstjóri