Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal endurnýja umsókn um húsaleigubætur árlega í upphafi árs og gildir umsóknin til ársloka.

Umsækjendur um húsaleigubætur í Grundarfjarðarbæ eru minntir á að skila umsókn fyrir árið 2007 til Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, Klettsbúð 4, 360 Hellissandur, eða til bæjarskrifstofu Grundarfjarðar, fyrir 19. janúar nk.

Húsaleigubætur eru greiddar eftir á fyrir hvern mánuð eins og lög um húsaleigubætur gera ráð fyrir.

Skilyrði fyrir húsaleigubótum eru m.a. eftirfarandi:

Að umsækjandi hafi lögheimili í Grundarfjarðarbæ.

Að umsækjandi hafi þinglýstan húsaleigusamning

til a.m.k. sex mánaða.

Að umsæjandi skili inn staðfestu skattframtali

síðasta árs ásamt launaseðlum síðustu

þriggja mánaða.

 

Umsóknareyðublöð fást hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga,

Klettsbúð 4, Hellissandi og á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar, Grundargötu 30.

 

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga.