Fyrir nokkrum misserum var ákveðið að hrinda í framkvæmd átaki við að koma öllum bygginganefnda- og verkfræðiteikningum af húsbyggingum í Grundarfjarðarbæ yfir á tölvutækt form og gera þær þannig aðgengilegar á heimasíðu bæjarfélagsins. Verkefnið var upphaflega ákveðið í tengslum við „tæknibæjarverkefnið“ en í því verkefni fólust tillögur að því að bæta stjórnsýsluna og auðvelda almenningi aðgang að ýmsum upplýsingum. Í þessum tilgangi hefur starfsfólks bæjarskrifstofunnar unnið markvisst að því að bæta heimasíðu bæjarfélagsins með sífellt aðgengilegri upplýsingum.

 

Í aðdraganda þessa teikningaátaks var samið við Snertil ehf. um sjálfa skönnunina og um uppsetningu á kerfi til að halda utan um teikningarnar. Verkið er komið vel á veg en þegar er búið að koma öllum teikningum af íbúðarhúsnæði í bæjarfélaginu á tölvutækt form, einnig öllum sumarhúsateikningum og teikningum allra mannvirkja á bújörðum. Búið er að skanna hluta iðnaðarhúsnæðis en þeirri vinnu hefur ekki verið lokið að fullu ennþá. Þessar teikningar eru nú aðgengilegar öllum og geta íbúar skoðað og prentað sjálfir teikningar heima hjá sér. Hönnuðir geta einnig nýtt sér þennan aðgang í tengslum við sína vinnu.

 

Kerfið býður upp á fleiri möguleika heldur en að halda utan um teikningar. Í framhaldinu verða allir skipulagsuppdrættir (aðal- og deiliskipulag) settir inn í kerfið, teikningar af vatnsveitu- hitaveitu- og fráveitulögnum og upplýsingar um gatnakerfi svo eitthvað sé nefnt. Kerfið býður einnig upp á íbúavef og rafrænar umsóknir auk upplýsinga um hina ýmsu þjónustu í bæjarfélaginu. Ofangreindir möguleikar eru ennþá í vinnslu.