Stjórn Snæfells, félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi hefur ákveðið að efna til opins fundar um sjávarútvegsmál. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík miðvikudaginn 26. janúar kl 20:00.

 

Á fundinum sem er öllum opinn verða flutt stutt erindi (10-15mín), að þeim loknum verða leyfðar fyrirspurnir til frummælenda úr sal. 

 

Fundarstjóri verður Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar

 

 

Dagskrá:

 

          Setning fundar: Símon Sturluson formaður Snæfells.

 

          Erindi:                Gísli Ólafsson varaformaður Snæfells

                                    EinarHjörleifsson Hafró- nýtingastefna og fiskvernd

                                    Jón Kristjánssson fiskifræðingur

                                    Guðmundur Jóhannesson deildarstjóri

                                    sjóeftirlits Fiskistofu         

                                    Hrafnkell Eiríksson Hafró- skyndilokanir og

                                    reglugerðarsvæði.

          Kaffihlé.

          Fyrirspurnir úr sal.

 

Tilefni þessa fundar er sú gríðalega óánægja sem varð við reglugerðarlokun á sunnanverðum Breiðafirði í haust, bæði með framkvæmd hennar og tilurð.  Einnig miklar áhyggjur okkar af slökum vaxtarhraða þorks og ætisskorti á firðinum.  Þá eru mjög skiptar skoðanir um árangur af fiskveiðiráðgjöf HAFRÓ, sem á 20 ára afmæli um þessar mundir. 

 

Snæfell hefur fengið sjálfstætt starfandi fiskifræðing Jón Kristjánsson til að gera rannsókn á kynþroska og vöxt þorsks á svæðinu og mun hann kynna niðurstöður sínar á fundinum.  Einnig verða á fundinum  Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafró,Örn Pálssonframkvæmdastjóri LS , Björn Ævarr Steinarsson forstöðumaður veiðiráðgjafasviðs Hafró og Guðmundur Karlsson forstöðumaður sérverkefnasviðs Fiskistofu, þannig að flestum spurningum fundarmanna verður hægt að svara.

 

Hvetjum fólk að láta sjá sig, því að á fundinum verður til umræðu stærsta atvinnumál Snæfellinga – sjávarútvegurinn.  

Stjórn Snæfells

 Símon Sturluson formaður

Gísli Ólafsson varaformaður

Lúðvík Smárason gjaldkeri

Bárður Guðmundsson

Jóhann R. Kristinsson