Kæru íbúar Helgafellssveitar, Grundarfjarðarbæjar og Stykkishólmsbæjar.
Vinna stendur nú yfir að greiningu á kostum og göllum þess að sameina Helgafellssveit, Grundarfjarðarbæ og Stykkishólmsbæ í eitt sveitarfélag. Verkefninu er stýrt af ráðgjafarsviði KPMG. Í framhaldi af þeirri vinnu fer fram umræða innan sveitarstjórna sveitarfélaganna um tillöguna.

Sjónarmið íbúa skipta miklu máli við gerð þessarar greiningar og því eru íbúar hvattir til þess að taka þátt í skoðanakönnun um málefnið (5-7 mínútur).

Könnunin er nafnlaus og er ekki hægt að rekja svör til þátttakenda.
Slóðin á könnunina er eftirfarandi; http://snaefellsnes.questionpro.com
 



Sveitarstjórnir sveitarfélaganna þriggja hvetja alla íbúa til þess að taka virkan þátt í þessu
verkefni með því að svara þessari könnun.
Síðar í þessu greiningarferli verður boðað til íbúafunda þar sem farið verður nánar út í þá þætti
sem skipta íbúa hvað mestu máli í framtíðinni. Nánar auglýst síðar.
Könnunin er opin til 16:00 þann 6. júlí.
Með von um góða þátttöku,