Stýrihópur um undirbúning íbúaþings Grundfirðinga hefur tekið ákvörðun um að færa íbúaþingið til 5. mars n.k. í stað 19. febrúar, í samráði við ALTA.

Með því gefst betri tími til undirbúnings og mótunar dagskrár og til kynningar meðal íbúa.

Nú er bara að merkja við 5. mars á dagatalinu og taka daginn frá.