Innlit á vef Grundarfjarðarbæjar hafa aldrei verið eins mörg og í mars mánuði, alls 14.535 eða um 469 á dag. Mánuðina janúar til apríl voru innlitin samtals 50.646 en voru 35.153 á sama tímabili í fyrra. Aukningin er 44%.

 

Við kappkostum að birta réttar og gagnlegar upplýsingar á vefnum og erum sannfærð um að við erum á réttri leið og stefnum á að gera enn betur. Takk fyrir góðar viðtökur.