- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Innritun í Tónlistarskóla Grundarfjarðar
Opnað hefur verið fyrir innritun í Tónlistarskóla Grundarfjarðar fyrir skólaárið 2026-2027. Skráningarfrestur er til 1.júní n.k.
Nemendur sem fara í 2.bekk (árgangur 2019) geta sótt um nám á eftirfarandi hljóðfæri: píanó, blokkflauta og söngur. Píanó og blokkflaututímar eru 20 mín en söngtímar eru hóptímar og 30 mín.
Nemendur sem verða í 3.bekk (árgangur 2018) og eldri geta sótt um nám á öll hljóðfæri.
Hljóðfæri sem eru í boði: Píanó, blokkflauta, þverflauta, saxófónn, klarinett, gítar, rafbassi, ukulele, slagverk (trommur), trompet, básúna, horn, túba og söngur. Tónlistartímar þeirra eru 30 mín í senn og hægt er að sækja um hálft nám, sem er 1x30 mín á viku, eða heilt nám, sem er 2x30 mín á viku. Söngtímar hjá 3.og 4.bekk eru hóptímar og hjá 5.bekk og eldri einkatímar. Hljóðfæratímar eru allir einkatímar.
Hlekkur á umsóknarform: https://tonviska.is/form/41/254fte27d7daa600/
Frekari upplýsingar veitir Linda María aðstoðarskólastjóri, netfang lindam@gfb.is