f.v. Þórdís, formaður íþrótta-og tómstundanefndar, Kolbrún, Benedikt, Kolla (f.h. Brynjars) og Guðmundur
Íþróttamaður Grundarfjarðar 2008 var kjörin á aðventu - og fjölskyldudeginum síðastliðinn laugardag.

Fimm aðilar voru tilnefndir til kjörsins: Kolbrún Garðarsdóttir fyrir afrek í hestaíþróttum, Benedikt Lárus Gunnarsson fyrir afrek í golfi, Brynjar Kristmundsson fyrir afrek í knattspyrnu, Sonja Sigurðardóttir fyrir afrek í frjálsum íþróttum og Guðmundur Haraldsson fyrir afrek í blaki.

Kosning fór þannig að Guðmundur var valin íþróttamaður Grundarfjarðar 2008 og er þetta annað árið í röð sem hann hlýtur þessa viðurkenningu. Hér má sjá myndir af afhendingunni.