Fimmtudaginn 23. september fer af stað íþróttavika Evrópu. Grundarfjarðarbær ætlar að sjálfsögðu að taka þátt í henni og í samstarfi við nokkra aðila hér í bæ höfum við sett saman dagskrá yfir þá viðburði sem verða þessa viku. Við hvetjum ykkur til að taka þátt  og skoða hvað er í boði. 

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur líkt og síðastliðin ár hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið vegna Íþróttaviku Evrópu. Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Evrópubúar sameinast í vikunni undir slagorðinu #BeActive. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

 Hér má sjá dagskrá íþróttavikunnar hjá okkur í Grundarfirði

Heimasíða Beactive