Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2007.

Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða.

 

Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 24. september n.k. til Jafnréttisráðs, Borgum, 600 Akureyri, í síma 460 6200, bréfsíma 460 6201 eða í tölvupósti  jafnretti@jafnretti.is