Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Jákvæð afkoma og lækkandi skuldir þrátt fyrir miklar framkvæmdir

 

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti samhljóða fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030 við fyrri umræðu. 

Gert er ráð fyrir 158,2 milljóna króna rekstrarafgangi hjá A- og B-hluta sveitarfélagsins árið 2027. Jafnframt er áætlað að lánaskuldir lækki á árinu og skuldahlutfallið fari úr 109,4% samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2026 í 101,4% í árslok 2027. Þessi niðurstaða næst þrátt fyrir umfangsmikla framkvæmda- og fjárfestingaráætlun ársins, sem nemur rúmlega 400 milljónum króna. 

Álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar jafnframt úr 0,5% í 0,47%. Við gerð fjárhagsáætlunarinnar var einnig miðað við að gjaldskrár sem lagðar eru á heimili hækki að hámarki um 2,5%.

Rekstrarhorfur næstu ára eru jafnframt góðar. Þriggja ára áætlunin gerir ráð fyrir áframhaldandi jákvæðri afkomu og styrkingu fjárhags sveitarfélagsins.