Verkefnið Jól í skókassa hefur staðið yfir undanfarið. Börn og fullorðnir voru duglegir að taka þátt og eru komnir yfir 40 jólapakkar. Börn í yngstu bekkjum grunnskóla Grundarfjarðar tóku þátt og skiluðu frá sér jólapökkunum 1. nóvember. Af því tilefni var boðið upp á súkkulaði og smákökur sem gladdi góða gefendur. Öllum sem komu að þessu verkefni er þakkað fyrir framlag sitt.

Þessar myndir voru teknar í Grunnskólanum.