Efri röð: Birkir Jón Jónsson, Yrsa Þöll Gylfadóttir, Friðrik Erlingsson, Arndís Þórarinsdóttir, Lilja Magnúsdóttir. Neðri röð: Berghildur Jónsdóttir, Felix Bergsson og Vilhelm Anton Jónsson. Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Börn í Grundarfirði voru í aðalhlutverki þegar Jólabókaflóð barnanna fór fram í Samkomuhúsi Grundarfjarðar miðvikudaginn 25. nóvember. Viðburðurinn er haldinn af skólabókasafni Grunnskólans í Grundarfirði í samstarfi við leshópinn Köttur út í mýri og fór nú fram í þriðja sinn.
Börnin höfðu lesið nýjar barnabækur og undirbúið spurningar fyrir höfunda þeirra. Að þessu sinni komu rithöfundarnir Arndís Þórarinsdóttir, Yrsa Þöll Gylfadóttir, Felix Bergsson og Vilhelm Anton Jónsson til Grundarfjarðar og settust í pallborð með ungum lesendum.
Friðrik Erlingsson rithöfundur var heiðursgestur Jólabókaflóðsins. Hann hélt ræðu um mikilvægi skáldskapar og fjallaði meðal annars um hvernig skáldskapur speglar raunveruleikann og gefur lesendum tækifæri til að spegla sig í persónum skáldsagna. Erindi Friðriks var áhugaverð hugvekja um mikilvægi skáldskapar.
Börnin spurðu höfundana
Fyrir hvert pallborð höfðu þrjú börn lesið bók eftir viðkomandi höfund og undirbúið spurningar. Þau leiddu samtalið og spurðu bæði út í bókina sem þau höfðu lesið og um ritstörfin almennt. Spurningarnar voru fjölbreyttar og skemmtilegar og gaman var að heyra hvað vakti forvitni barnanna, bæði við lestur bókanna og um störf rithöfundanna. Í hverju pallborði var jafnframt umræðustjóri úr hópi heimamanna sem hélt utan um samtal barnanna við höfundinn.
Friðmey Ósk Fannarsdóttir, Bjartey Ebba Júlíusdóttir og Kristín María Magnúsdóttir ræddu við Arndísi Þórarinsdóttur um bókina Babb. Gyða Rós Freysdóttir var umræðustjóri.
Hrafney Dóra Sveinsdóttir, María Dís Eymarsdóttir og Amanda Kolbrún Andradóttir ræddu við Yrsu Þöll Gylfadóttur um bókina Allt í rugli!. Linda María Nielsen var umræðustjóri.
Markús Örn Pálsson, Marley Yggdrasil Daníels og Ísleifur Andres Guðnason ræddu við Felix Bergsson um bókina Leynifélag í lífsháska. Ragnar Smári Guðmundsson var umræðustjóri.
Kjartan Alexander Kjartansson, Magni Rúnar Sigurbjörnsson og Alexander Guðni Frost ræddu við Vilhelm Anton Jónsson um bókina Strákinn með sægrænu augun. Birkir Jón Jónsson var umræðustjóri.
Kynnar Jólabókaflóðsins
Kynnar Jólabókaflóðsins voru þau Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar og Berghildur Jónsdóttir nemandi í 4. bekk Grunnskóla Grundarfjarðar. Berghildur var einnig kynnir á jólabókaflóðinu í fyrra og tók hún að sér það hlutverk að leiða Birki í gegnum frumraun hans sem kynnis á Jólabókaflóði. Stóðu þau sig bæði með miklum sóma.
Óvænt tónlistaratriði
Tónlistarskóli Grundarfjarðar var með óvænt tónlistaratriði. Nemendur tónlistarskólans, þau Ísabella Ósk Davíðsdóttir, Jódís Kristín Jónsdóttir, Bergur Ingi Þorsteinsson og Sævar Hjalti Þorsteinsson fluttu nýja útgáfu af laginu "Ég ætla að verða kóngur klár" úr kvikmyndinni "Konungur Ljónanna", þar sem Lilja á bókasafninu var búin að semja jólatexta við lagið. Felix Bergsson brá sér í gervi Zazú og söng með krökkunum.
Þriðja Jólabókaflóð barnanna
Jólabókaflóð barnanna var nú haldið í þriðja sinn og hefur viðburðurinn vaxið ár frá ári. Að þessu sinni tóku 64 nemendur úr Grunnskóla Grundarfjarðar og 30 fullorðnir þátt í lestrinum, auk barna á Drekadeild leikskólans Sólvalla. Alls voru 86 bækur lesnar, samanlagt 16.764 blaðsíður, og þátttakendur skiluðu á bilinu 80-90 bókadómum. Bókadómarnir eru síðan sendir til höfunda og bókaforlaga.