Mynd Leons Loga 6 ára, af jólasveininum, jólakettinum og honum sjálfum um jólin
Mynd Leons Loga 6 ára, af jólasveininum, jólakettinum og honum sjálfum um jólin

 

Jólakort Grundarfjarðarbæjar 2023

Eins og fimm síðastliðin ár tóku nemendur Grunnskóla Grundarfjarðar þátt í því skemmtilega verkefni að teikna jólamyndir fyrir "Jólakort Grundarfjarðarbæjar 2023".

Afraksturinn var góður, tugir fjölbreyttra jólamynda sem voru fallegar, jólalegar, fyndnar og skemmtilegar. Starfsfólk bæjarskrifstofu var fengið í lokadómnefndina. Valið var erfitt í ár líkt og undanfarin ár og óvenju jafnt, þannig að ákveðið var að veita 3 myndum verðlaun. Myndirnar eru mjög ólíkar, einlægar og fallegar,  hver á sinn hátt. 
Það voru þau Leon Logi í 1. bekk, Benjamín Æsir í 5. bekk og Nicole í 7. bekk sem gerðu jólamyndir ársins 2023!

Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri hitti listamennina þrjá í dag, 22. desember, og þakkaði þeim fyrir myndirnar sínar. 

  

 

Verðlaunamyndirnar má sjá hér fyrir neðan. Smellið á hverja mynd til að sjá textann.