Jólakortamyndin 2021 sem Heiðrún Oddsdóttir teiknaði.
Jólakortamyndin 2021 sem Heiðrún Oddsdóttir teiknaði.

Eins og þrjú síðastliðin ár tóku nemendur Grunnskóla Grundarfjarðar þátt í því skemmtilega verkefni að teikna jólamyndir fyrir "Jólakort Grundarfjarðarbæjar 2021".

Afraksturinn var góður, tugir fjölbreyttra jólamynda sem voru fallegar og jólalegar og sumar fyndnar og skemmtilegar. 

Nýja starfsfólkið okkar; skipulagsfulltrúi, byggingarfulltrúi og íþrótta- og tómstundafulltrúi voru fengin í lokadómnefndina.

Valin var jólakortamynd ársins 2021, en það var Heiðrún Oddsdóttir í 8. bekk sem teiknaði vinningsmyndina í ár. Myndin sýnir fallegan jólaglugga og vetrarlegt útsýni úr honum. 

Jólakortið 2021 Heiðrún Oddsdóttir verðlaunahafi

Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri heimsótti Heiðrúnu heim til hennar að Skallabúðum seinnipartinn á Þorláksmessu og færði henni viðurkenningu Grundarfjarðarbæjar.