Sunnudaginn 29. nóvember sl. var birtur fyrsti hluti af fjórum af "Jólalög á aðventunni". 

Leitað var til Grundfirðinga, sem heyrst hafði að gætu sungið og óskað eftir þátttöku þeirra. Að vonum voru allir sem leitað var til viljugir að stíga út fyrir þægindahringinn sinn og taka þátt og erum við þeim ótrúlega þakklát.

Það er Listvinafélag Grundarfjarðarkirkju í samstarfi við Grundarfjarðarbæ sem eiga heiðurinn af þessari tónleikaröð sem birt verður, nokkur lög í senn, kl. 19 á hverjum sunnudegi fram til jóla. Á þriðja í aðventu verður Aðventukvöld Grundarfjarðarkirkju birt, sjá nánar hér.

Sérstakir lokatónleikar verða svo sýndir kl. 20 á Þorláksmessukvöldi - Tilvalið að setjast niður eftir skötu og hlusta á ljúfa tóna.

Lögin verða birt á Youtube-síðu Grundarfjarðarbæjar. Íslensku jólalögin sem ylja okkur um hjartarætur sem og sérstakur flutningur á pólsku urðu fyrir valinu og hlökkum við til að deila þeim með ykkur.

Njótum saman í desember, heima með okkar nánustu.