Í Norska húsinu er jólastemmingin allsráðandi og húsið hefur verið skreytt með jólaskrauti sem tengist liðnum jólum og er sannkallað ævintýri fyrir börn á öllum aldri.

 

Í Krambúð safnsins er jólakrambúðarstemming og boðið er upp á heitan epladrykk og piparkökur. Og væna flís af feitum sauð má hugsanlega nálgast í eldhúsinu.

 

Heimsókn í Norska húsið á aðventunni er ógleymanleg upplifun.

 

Norska húsið er opið alla aðventuna

þriðjudaga til sunnudaga kl.  14.00-18.00

og auk þess á fimmtudagskvöldum kl. 20.00-22.00