Síðastliðinn laugardag var aðventubyrjun fagnað í Grundarfirði. Haldin var jólastund í miðbænum og kveikt var á jólatrénu. Margir mættu og skemmtu sér konunglega. Tónlistarskólinn var með tónlistaratriði, Sr. Aðalsteinn hélt ávarp og nokkrir jólasveinar litu við.

 Lions menn sáu um að koma upp og skreyta jólatréð sem að þessu sinni var gefið af Sigurbergi Árnasyni.