Eins og undanfarin ár mun starfsmaður áhaldahúss Grundarfjarðarbæjar aðstoða bæjarbúa við að fjarlægja jólatré sín. Íbúar skulu koma trjánum fyrir við lóðamörk sín og tryggja að ekki stafi fokhætta af þeim.
Starfsmaður mun hirða trén eftir hádegið fimmtudaginn 8. janúar.