- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Kennararnir Cathy Kerboull, Elisabeth Cochon og Sylvie Le Dû frá Paimpol í Frakklandi heimsóttu Grundarfjörð í lok síðustu viku og kynntu sér meðal annars starf leik- og grunnskólans.
Í leikskólanum fengu kennararnir fræðslu frá Elísabetu Kristínu Atladóttur, aðstoðarleikskólastjóra, um Blæ, vináttubangsann sem er hluti af verkefni Barnaheilla um vináttu og góð samskipti barna.
Þegar börnin fóru í sumarfrí var þeim sagt frá því að Blær væri á leið í heimsókn til Paimpol. Með ævintýri Blæs var skapaður skemmtilegur grunnur að því að kynna börnunum vinabæjarsamband Grundarfjarðar og Paimpol og efla tengsl barna á stöðunum tveimur. Það fellur jafnframt vel að menntastefnu Grundarfjarðarbæjar, þar sem lögð er áhersla á að skólarnir vinni að því að styrkja vinabæjatengslin við Paimpol.
Gestirnir komu jafnframt færandi hendi og afhentu leikskólabörnum púsluspil með mynd frá Paimpol og bók frá jafnöldrum þeirra þar í bæ. Í bókinni segja börnin frá ýmsu sem þau gerðu í sumarstarfi sínu.
Að heimsókninni í leikskólann lokinni hélt hópurinn í grunnskólann. Þar hittu kennararnir Sigurð Gísla Guðjónsson skólastjóra, Önnu Kristínu Magnúsdóttur aðstoðarskólastjóra og kennarana Helgu Maríu Jóhannesdóttur og Kristínu Ölmu Sigmarsdóttur. Rætt var um samstarf og möguleika á áframhaldandi tengslum milli skólanna.
Í heimsókninni hittu kennararnir einnig Birki Jón Jónsson, bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar, Hinrik Konráðsson, formann GrundaPol í Grundarfirði, og Pálma Jóhannsson, forstöðumann menningar- og markaðsmála.
Heimsóknin var gott tækifæri til að styrkja tengslin milli Grundarfjarðar og Paimpol og ræða möguleika á frekara samstarfi skólanna.