Grunnskóli Grundarfjarðar auglýsir eftir kennara á öll stig skólans.

Meðal kennslugreina er textílmennt, heimilisfræði ásamt bóklegum greinum. Valkennsla á unglingastigi, leiklist og fleira. Starfshlutfall fer eftir samkomulagi. Grunnskóli Grundarfjarðar er 110 nemenda skóli í 1. – 10. bekk. Í húsnæðinu er einnig leikskóladeild fyrir elstu nemendur leikskólans.

Vakin er athygli á stefnu Grundarfjarðarbæjar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem bærinn er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að annast kennslu nemenda.
  • Að standa vörð um velferð og nám barnanna.
  • Að þróa í samvinnu við samstarfsmenn framsækið og faglegt starf með áherslu á fjölbreyttar námsnálganir.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem grunnskólakennari
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla mjög æskileg
  • Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
  • Löngun til að vinna í teymi Hæfni í samskiptum
  • Frumleiki og sjálfstæði
  • Brennandi áhugi fyrir kennarastarfinu

Laun eru samkvæmt samningi Grundarfjarðarbæjar og KÍ

Umsóknarfrestur er til og með 26. maí Nánari upplýsingar veitir Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri í netfangið sigurdur@gfb.is og Anna Kristín Magnúsdóttir, aðstoðarskólastjóri í netfangið annak@gfb.is eða í síma 4308550