Eftirfarandi er yfirlýsing sem eigendur jarðanna þriggja sendu frá sér í morgun, 8. nóvember 2022: 

Yfirlýsing frá landeigendum Kirkjufells við Grundarfjörð

Laugardaginn 5. nóvember sl. funduðu eigendur jarðanna Kirkjufells, Háls og Búða með bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa Grundarfjarðarbæjar, fulltrúum frá viðbragðsaðilum og frá Ferðamálastofu, um viðbrögð við stigmögnuðum fjölda ferðamanna sem leggur leið sína að Kirkjufelli og fjölda alvarlegra slysa sem hlotist hafa við uppgöngu á fjallið. Rædd voru viðbrögð og ráðstafanir til að bæta öryggi allra sem leggja leið sína að og á Kirkjufell.

Fundarmenn voru sammála um að í algerum forgangi séu aðgerðir til að tryggja sem best öryggi ferðafólks og viðbragðsaðila, bæði til skemmri og lengri tíma.

Tíð slys og dauðsföll ferðafólks, sem lagt hefur leið sína á Kirkjufell, kalla á enn frekari öryggisráðstafanir.  Gróður í fjallinu er einnig viðkvæmur og hefur látið mikið á sjá vegna átroðnings, sem aftur dregur enn frekar úr öryggi fólks á svæðinu. Mikil slysahætta skapast á fjallinu að hausti og vetri, þegar blautt er og snjór og frost er í fjallinu. Sömuleiðis að vori, þegar gróðurhulan er enn laus á berginu. Þetta þekkja heimamenn og ganga ekki á Kirkjufell nema þegar þurrt er og aðstæður góðar. Þó að varúðarskilti sem stendur við rætur Kirkjufells gefi skýrar leiðbeiningar um hvernig fólk skuli vera útbúið ef það hyggur á göngu á fjallið og við hvaða aðstæður sé ekki ráðlegt að leggja í göngu hefur ítrekað borið á því að eftir þeim leiðbeiningum sé ekki farið.

Í samtölum, einkum við erlent ferðafólk, höfum við orðið vör við að fólk skynjar ekki hætturnar og ákveður, þrátt fyrir viðvaranir, að ganga á fjallið illa búið og við hættulegar aðstæður. Samkvæmt upplýsingum frá viðbragðsaðilum hafa flest slysin átt sér stað að hausti og vetri þegar aðstæður eru hvað erfiðastar og lítið má út af bregða svo fólki skriki ekki fótur og falli niður brattar hlíðarnar. Aðstæður viðbragðsaðila sem kallaðir eru til björgunar í Kirkjufelli eru ávallt erfiðar og hættulegar. Landeigendur vilja í lengstu lög forðast að björgunarfólk þurfi að leggja sjálft sig í lífshættu við að fara í erfið og krefjandi útköll á þeim tíma þegar aðstæður eru hvað varhugaverðastar.

Með allt þetta í huga og til að freista þess að forða frekari slysum hafa landeigendur því ákveðið að banna uppgöngu á Kirkjufell frá og með deginum í dag og þar til varptíma í fjallinu er lokið þann 15. júní 2023. Þessu til staðfestingar verða fljótlega sett upp skilti við uppgönguleið á fjallið og á bílastæði við Kirkjufellsfoss, auk þess sem upplýsingum um þetta verður komið á framfæri með viðeigandi hætti. 

Samhliða verður tíminn til komandi vors nýttur til að vinna enn frekar að framtíðaröryggismálum og aðgengi á svæðinu. Í þeim tilgangi verður stofnaður samráðshópur skipaður fulltrúum landeigenda, viðbragðsaðila, Grundarfjarðarbæjar og annarra opinberra aðila sem koma að öryggismálum ferðafólks og náttúruvernd.

Landeigendur biðla til allra sem koma að ferðamálum og upplýsingagjöf að áminna ferðafólk um að ganga ekki á Kirkjufell yfir vetrartímann. Er þetta gert með öryggi allra í huga.

Við biðjum alla að virða þessa lokun og stofna hvorki sjálfum sér né öðrum í hættu!

Grundarfirði, 8. nóvember 2022, 
Landeigendur Búða, Háls og Kirkjufellslands