- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Auglýsing um kjörfund vegna Alþingiskosninga 2024
Kjörfundur vegna Alþingiskosninga í Grundarfirði verður í Samkomuhúsi Grundarfjarðar, Sólvöllum 3,
laugardaginn 30. nóvember 2024.
Kjörfundur stendur yfir frá kl. 10:00-22:00.
Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum.
Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá.
Einnig er hægt að kjósa utan kjörfundar í Ráðhúsi Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, efri hæð. Opið á virkum dögum frá kl. 10-14.
Kjörstjórn Grundarfjarðarbæjar