Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga verður haldinn laugardaginn 27. maí nk. Kjörstaður er í Samkomuhúsinu Grundarfirði. Kjörfundur stendur frá kl. 10.00 til kl. 22.00. Athygli er vakin á því að kjósendur geta þurft að gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd.

 

Talning atkvæða fer fram fyrir opnum dyrum í Samkomuhúsinu og hefst um það bil klukkustund eftir að kjörfundi lýkur. Hægt er að fylgjast með talningunni hér á vefnum, en bein útsending með vefmyndavél verður frá talningunni og hefst u.þ.b. klukkustund eftir að kjörfundi lýkur.

 

Grundarfirði, 23. maí 2006

 

F.h. kjörstjórnar Grundarfjarðarbæjar

Bæjarstjórinn í Grundarfirði