Kjörskrá Grundarfjarðarbæjar vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013 verður lögð fram 17. apríl næstkomandi.

Til kjördags mun kjörskráin liggja frammi til skoðunar á bæjarskrifstofunni, Grundargötu 30, á opnunartíma skrifstofunnar, mánudaga-föstudaga kl. 10-14.

 

Hægt er að gera athugasemdir við kjörskrá fram á kjördag og skal senda erindi þess efnis til bæjarstjórnar.

 

Nánari upplýsingar um kosningarnar má finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins, www.kosning.is

 

Bæjarstjórinn í Grundarfirði