Kjósendur í Grundarfirði athugið !

Kjörskrá vegna kosninga til Alþingis laugardaginn 25. apríl n.k. verður lögð fram föstudaginn 17. apríl 2009 á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar.  Kjörskráin liggur frammi til athugunar fyrir kjósendur á opnunartíma skrifstofunnar mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09.30 - 15.30 og á föstudögum kl. 09.30 - 14.00.  Ábendingum eða athugasemdum vegna kjörskrár skal komið til bæjarstjóra í síðasta lagi þ. 25. apríl 2009.

Bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar.