Kosning til stjórnlagaþings verður laugardaginn 27. nóvember 2010. Á kjörskrá eru allir sem eru með lögheimili í sveitarfélaginu þremur vikum fyrir kjördag, þ.e. laugardaginn 6. nóvember 2010 uppfylli þeir aö öðru leyti skilyrði 1. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.

Samkvæmt þessu mun kjörskrá miðast við þá sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu 6. nóvember nk. Lögheimilisflutning skal tilkynna til bæjarskrifstofunnar en einnig er hægt að tilkynna flutning til Þjóðskrár.