Kór Neskirkju heimsækir Grundarfjörð og heldur tónleika í Grundarfjarðarkirkju föstudagskvöldið 3. júní kl. 20:30.

Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt.  Flutt verða sumarleg sönglög, íslensk þjóðlög, sálmar og ættjarðarlög í bland við nokkur erlend tónverk.   Af verkum íslenskra tónskálda á efnisskránni má nefna  tónlist eftir Báru Grímsdóttur, Þorkel Sigurbjörnsson, Sigvalda Kaldalóns, Emil Thoroddsen, Inga T. Lárusson og KK.    Af erlendum tónskáldum má nefna John Bennett, Anton Bruckner, R. Nathaniel Dett og Nathan Hall. Saman syngja kórar Neskirkju og  Grundarfjarðarkirkju nokkur lög.  Stjórnandi Kórs Neskirku er Steingrímur Þórhallsson.

Allir hjartanlega velkomnir – enginn aðgangseyrir.

Kór Neskirkju lýkur vetrarstarfinu með því að leggja land undir fót og ferðast um Snæfellsnes helgina 3. – 5. júní.    Starfandi félagar í Kór Neskirkju eru ríflega 40.  Kórinn er áhugamannakór, samansettur af áhugasömum og söngelskum einstaklingum úr Neskirkjusókn og víðar af Höfuðborgarsvæðinu.  Verkefnaskrá kórsins hefur verið fjölbreytt síðustu ár.   Í desember 2010 flutti kórinn messu í D-dúr eftir Dvořák og í mars 2011 var flutt Sálumessa Fauré í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Í desember 2011 er stefnt að flutningi á Magnificat eftir Bach. 

 

Nánari upplýsingar veita Sigríður Haraldsdóttir, 863-4290, sigridur.haraldsdottir@gmail.com og Steingrímur Þórhallsson, s. 896-8192, steini@neskirkja.is