Það nálgast hið stórkostlega KÚTMAGAKVÖLD Lionsklúbbs Grundarfjarðar.  Mikilfengleg matarveisla og stórkostleg skemmtun í Fjölbrautarskóla Snæfellinga laugardaginn 7. mars n.k.  

 

Sem fyrr verða á hlaðborði Kútmagakvöldsins hinn landsfrægi kútmagi, sjávarréttasúpa, gota og lifur elduð eftir kúnstarinnar reglum, þjóðlegur plokkfiskur, ljúffengar gellur, koli og hin margrómaða hausastappa sem hefur verið á allra vörum  og auðvitað óteljandi aðrir fiskréttir að hætti kokkanna.  

Sjálf skemmtidagskráin verður af léttara taginu  og rúsínan í pylsuendanum er HAPPDRÆTTIÐ sem slegið hefur í gegn vegna stórkostlegra vinninga. 

Allur ágóði kvöldsins rennur til kaupa á Lúkasi ,  sjálfvirku hjartahnoðtæki fyrir sjúkrabílinn í Grundarfirði  og fleiri góðra líknarmálefna.

Húsið opnar kl. 19.00 og borðhald hefst kl. 20.00.   Miðaverð aðeins kr. 3000 –

Panta þarf miða miða fyrir föstudaginn 6. mars hjá: Móses  s: 8933321-

Salbjörgu s: 8966650 – Olgu Sædísi  s: 8616780