Allar konur eru boðnar velkomnar í kynningu á þjóðgarðinum Snæfellsjökli á Malarrifi þann 24. maí kl 18-20. Markmiðið með kvennakaffinu er að konur af mismunandi þjóðerni hittist, tali saman og kynnist.

Skráning er hjá Kvenfélagi Ólafsvíkur til og með mánudeginum 22. maí á netfangið soley@gsnb.is eða í síma 8481505.

 

Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á hressingu.