Mánudaginn 9. nóvember mæta fulltrúar Stjórnstöðvar ferðamála í Samkomuhúsið í Grundarfirði og halda þar opinn fund um nýjan vegvísi í ferðaþjónustu.

Ferðamálin snerta okkur flest á einn eða annan hátt og því eru bæjarbúar hvattir til að mæta til fundarins og kynna sér málin. Nánari upplýsingar má finna á vef Stjórnstöðvar ferðamála, www.ferdamalastefna.is