Fulltrúi Rannsóknamiðstöðvar Íslands, Rannís, Eiríkur Smári Sigurðarson
kynnir helstu sjóði í umsýslu Rannís og umsókna- og matsferli sjóðanna.


1.    Tækniþróunarsjóður: Hlutverk hans er að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Sjóðurinn styður rannsóknir og tækniþróun sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Umsóknarfrestur: 15. september 2006.


 

2.    Rannsóknasjóður: Hlutverk hans er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi. Sjóðurinn styrkir skilgreind rannsóknaverkefni einstaklinga, fyrirtækja, háskóla og stofnana. Umsóknarfrestur: 1. október 2006.

 

3. Markáætlun um erfðafræði í þágu heilbrigðis og örtækni. Tekið verður við umsóknum til forverkefna frá og með 1. september.

 

Kynningarfundurinn verður haldinn í Ráðhúsinu í Stykkishólmi, fimmtudaginn 7.september  kl. 17:00.

 

Allir velkomnir!